Þjónusta

Kennsla

Hestar.is bjóða upp á kennslu jafnt fyrir hópa sem einstaklinga. Á Forsæti er reiðskemma sem hentar vel fyrir einkakennslu, þá er stutt í nýja og glæsilega höll á Hvolsvelli sem hægt er að vera með hóp eða einkakennslu. Einnig förum við hvert á land sem er, allt eftir óskum viðskiptavinarins. Við erum bæði með kennsluréttindi FT og margra ára reynslu í kennslu janft innanlands sem utan, sem má sjá undir um okkur.

Tamning

Tómas Örn og Jelena eru bæði menntað tamningafólk með mikla reynslu. Aðal áhersla í tamningu og þjálfun hests er traust og gagnkvæm virðing. Hver einstaklingur er metinn og taminn/þjálfaður út frá hans forsendum. Hér eru tekin hross á öllum tamningar- og þjálfunarstigum, allt frá því að vera ótamin upp í að þjálfa fyrir kynbótasýningar, keppni, sölu, og/eða til útreiða.