Upplýsingar um okkur

Tómas Örn Snorrason

Tómas Örn SnorrasonTómas Örn Snorrason (Tommi Snorra) er fæddur 1973 í Reykjavík, næstelstur fjögurra systkina. Foreldrar hans eru Kristjana Unnur Valdimarsdóttir og Snorri Þór Tómasson. Áhugamál þeirra hafa alla tíð snúist um hross Samhliða hrossarækt og hestamennsku hafa þau starfað mikið að félagsmálum innan Hestamannafélagsins Fáks. Víðidalurinn í Reykjavík var því umhverfi Tomma í barnæsku á veturna. Á sumrin var hann mikið í Grenstanga hjá Valdimari afa og Þuru ömmu, þar sem stunduð var sauðfjár- og hrossarækt.

Í nokkur sumur dvaldi hann líka hjá Sigmari og Guðlaugu í Miðhjáleigu, næsta bæ við ömmu og afa. Ellefu ára fékk hann Krapa frá Miðhjáleigu, grátt hestfolald í sumarlaun, sem hann svo tamdi og keppti á.

Tommi er þjálfari og reiðkennari C í Félagi Tamningamanna. Frá árinu 1993 hefur hann haft tamningar og þjálfun hesta að atvinnu, lengst af í Víðidal í Reykjavík. Á árunum 1997-2007 rak hann fyrirtækið Fákaból með Róberti Petersen. Þar sem veitt var fjölbreytta þjónustu fyrir hestafólk, svo sem tamningar og reiðkennsla, hirðing hrossa, og járningar. Hann hefur tekið þátt í mörgum sýningum bæði innanlands og erlendis. Einnig hefur hann verið sýningarstjóri á Reiðhallarsýningum í Reykjavík og þjálfað börn undir knapamerkjaprófið.

Þá hefur hann hefur unnið mikið í Þýskalandi við þjálfun, sýningar og námskeiðahald og einnig í Bandaríkjunum með Guðmari Þór. Péturssyni og í Kanada á Vindsdalur Icelandic Horsefarm.

Tommi er ekki óvanur keppnisvöllum og hefur tekið þátt í mörgum mótum. Hann var Íslandsmeistari í slaktaumatölti árið 2003. Hann hefur tvisvar sinnum átt sæti í landsliði Íslands. Á heimsmeistaramótinu í Sviss árið 1995 var hann með Emblu frá Miðengi í kynbótum og lenti í öðru sæti. Árið 2003 keppti hann í slaktaumatölti með gæðinginn Skörung frá Bragholti og var í 5 sæti..

Jelena Ohm

Jelena OhmJelena Ohm er fædd í Þýskalandi árið 1984 og hefur verið á hestbaki frá unga aldri. Móðir hennar, Lisi Ohm hefur átt íslenska hesta frá því Jelena var þriggja ára. Árið 1994 flutti Jelena ásamt fjölskyldu sinni með nokkur íslensk hross til Kanada. Þar ólst hún upp með sleðahundum og íslenskum hestum. Á Vindsdal í British Columbíu hófu þær mæðgurnar mikið kynningarstarf á íslenska hestinum sem stendur enn.

Jelena var liðsstjóri á FEIF Youth Cup árið 2002 í Svíþjóð og aðstoðaði einnig reiðkennara þar við þýðingar námsefnis yfir á ensku. Í framhaldi af því réð hún sig til Þýskalands og vann hjá Walter Feldmann í hálft ár. Þar vann hún að því að komast á HM og keppti fyrir hönd Kanada í Danmörku árið 2003.

Í janúar árið 2004 voru tímamót í lífi Jelenu, þegar hún kom til Íslands og fór að vinna með hross norður á Þingeyrum hjá Helgu Thoroddsen og á Sveinsstöðum hjá Magnúsi Ólafssyni. Haustið eftir hóf hún nám við hestabrautina á Hólum og útskrifaðist þaðan 2006 sem tamningamaður og leiðbeinandi.

Hún hefur margskonar reynslu af hestasýningum og námskeiðahaldi bæði innanlands og erlendis. Jelena útskrifaðist sem Reiðkennari C og þjálfari frá Háskólann á Hólum í Maí 2009. Hún er einnig með gæðinga- og íþróttadómararéttindi.