Ívari verður sleppt í merar 24 júni í Grenstanga
Ívar frá Blesatstöðum mun sinna merum í Grenstanga í sumar. Þeir sem vilja halda undir þennan efnilega fola geta haft samband við Tómas í síma 8972027 eða senda póst á netfangið tommijelena@hestar.is. Ívar er undan hinum mikla gæðing Krumma frá Blesastöðum sem hefur hlotið 8,80 fyrir hæfileika og þar af 9,5 fyrir tölt. Ívar er sammæðra hinum stólpagæðing Möller frá Blesastöðum sem hefur hlotið 8,95 fyrir hæfileika þar af 9,5 fyrir tölt. Fyrstu afkvæmi Ívars líta vel út fara á tölti í miklum fótaburði lofthá og reist.






