Hryssur


FantasíaFantasía frá Grenstanga - Seld

IS2002284257

sótrauð, vindhært í fax og tagl

F: Stígur frá Kjartansstöðum

FF: Náttfari frá Ytra-Dalsgerði

MF: Terna frá Kirkjæbæ

M: Fluga frá Gerðum

FM: Ófeigur frá Flugumýri

MM: Gerpla frá Kópavogi

Fantasía er frábær alhliða hryssa fyrir alla fjölsylduna! Hún er með góðan fótaburð og allar gangtegundir eru góðar. Hún er léttviljug og mjög skemmtilegur karakter, ávallt létt í beisli og mikið taminn. Rýmið í Fantasíu er mikið, hún hugsar alltaf fram, en það er ekkert mál að slaka henni niður. Mjög auðvelt hross! Hún hentar jafnvel í keppni fyrir ungling og/eða sem æðislegt reið-og ferðahross. Fantasía er með frábært mjúkt tölt og hentar flestum. Hún er mjög vel ættuð og ekki skemmir liturinn ;)

á hægu stökkibrokk 

Hrafnkatla og Karen sumar ´09Hrafnkatla frá Stóra-Langadal

Frábært Knapamerkjahross á góðu verði!

IS2004237010

Brún

F: Tvistur frá Stóra-Langadal

FF: Stígur frá Kjartansstöðum

MF: Rún frá Laugarvatni

M: Þota frá Stóra-Hófi

FM: Sörli frá Sauðárkróki

MM: Fenja frá Stóra-Hófi

Hrafnkatla er ung alhliða meri en hún hefur verið þjálfuð sem klárhross hingað til. Skeiðið er þó galopið fyrir henni. Hún er mikið taminn þrátt fyrir ungan aldur. Hún er létt í beisli og kann allar grunnæfingar eins og kross- og sniðgang, o.s.f.v. Hún er mjög þæg í allri umgengni og skemmtilegt reiðhross fyrir alla! Hrafnkatla er létt viljug með skemmtilegan karakter og gæti hentað ungling í keppni því hún er einnig með góðan fótaburð. Hér er frábær hryssa á ferð sem er klár í knapamerkjakerfið jafnt sem útreiðar og keppni.

Verð: 450.000,-ISK

 

 


Barónessa frá Brekkum- vel ættuð fyrstu verðlauna hryssa

Barónessa

IS2001284717

brún

F: Sær frá Bakkakoti (8.62 a.e.)

FF: Orri frá Þúfu (8.34 a.e)

MF: Sæla frá Gerðum (8.11 a.e.)

M: Spönn frá Árbakki (8.20 a.e.)

FM: Stígandi frá Hvolsvöllur (8.32 a.e.)

MM: Melkorka frá Stokkhólma

Barónessa er fyrstu verðlauna alhliða hryssa. Hún er meðal annars með 9 fyrir fet og vilja, 8,33 fyrir hæfileika og 8,09 í aðaleinkunn. Barónessa er undan heiðursverðlaunahestinum Sæ frá Bakkakoti og fyrstu verðlaunahryssuni Spönn frá Árbakka. Hér er spennandi ræktunameri á ferð og einnig lofar hún góðu í fimmgang. Barónessa er með 120 í aðaleinkunn í BLUP! Einnig erum við til í að selja bara helminginn í Barónessu og rækta undan henni hér á Íslandi.

Barónessa er fylfull undan Þorsta frá Garða

Sköpulag

Höfuð 7
Háls/herðar/bógar 8
Bak og lend 8.5
Samræmi 7
Fótagerð 8
Réttleiki 7.5
Hófar 8
Prúðleiki 7.5
Sköpulag 7.72
Kostir
Tölt 8
Brokk 8.5
Skeið 8
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 9
Fegurð í reið 8
Fet 9
Hæfileikar 8.33
Hægt tölt 7.5
Hægt stökk 7.5

Aðaleinkunn 8.09

Barónessa brokk

skeið tölt

Álma á skeiðleikum Selfossi ´09Álma frá Álftárósi- Seld

IS1998236760

dökkrauð vindhærð blesótt

F: Svartur frá Unalæk (8,54 a.e.)

FF: Kjarval frá Sauðárkróki (8,32 a.e.)

MF: Fiðla frá Snartastöðum (heiðurlsverðlaun f. afkvæmi)

M: Rún frá Hvítárbakka

FM: Straumur frá Bræðratungu

MM: Freyja frá Borganesi

Álma er fyrst og fremst frábær reiðhryssa með mjúkt og gott tölt, rúmt brokk, og ekki síst er hún eldsnögg á stökki og skeiði. Besti tíminn hennar í 150m skeiði er 14,92 sec. og hefur hún verið nánast eingöngu í þeirra vegalengd. Í gæðingaskeiði hefur Álma og Tommi náð best 6,92 í aðaleinkunn. Álma er falleg meri sem alltaf er fremst úr startboxinu og auðvelt er að leggja hana. Hún var meðal annars skeiðhross einn vetur á Hólum. Hún er vel taminn, viljug og næm. Það er ekkert mál að vera einn á henni til að stjórna heilu stóði og reka það á milli bæja ;)

Verð: 1.000.000,-ISK

Álma og Jelena á FM ´09, ræktunarbúsýning


GæfaGæfa frá Þingeyrum- Seld

IS2001256324

rauð glófext tvístjörnótt

F: Piltur frá Sperðli (8.33 a.e.)

FF: Stígur frá Kjartansstöðum (8.15 a.e.)

M: Gjöf frá Neðra-Ási (7.78 a.e.)

FM: Eðall frá Hólum (8.16 a.e.)

MM: Pera frá Nera-Ási (7.69 a.e.)

Gæfa er 8 vetra alhliða meri. Allar gangtegundir eru góðar og hún er mjög vel þjálfuð og góð í fimi. Gæfa er með fínar hreyfingar og er frábær reiðhross fyrir vanar knapar. Hún er frábær í umgengni.

Verð: 400.000,-ISK