Hrossin okkar
Kara frá Meðalfelli
IS2002225086
F: Orri frá Þúfu
M: Kleo frá Meðalfelli
Köru keyptum við í Febrúar 2008. Hún var alhliða hrossið hennar Jelenu á Reiðkennaradeildinni á Hólum. Kara er kraftmikil og viljug alhliðahryssa með fyrstu verðlaun fyrir byggingu. Hún er afar næm og með skemmtilegan karakter. Stefnan er að hafa hana í keppni næsta árið allavega, og byrja svo að rækta undan henni.
Sónata frá Álftárósi
IS2001236760
F: Andvari frá Skáney
M: Svarta-Þoka frá Borgarnesi
Sónötu eigum við saman með vinum okkar þeim Gígju Dögg Einarsdóttir og Guðmari Þór Péturssyni. Gígja ræktaði Sónötu og frumtamdi hana, Tommi tók svo við henni á fimmta vetur og gerðum við með okkur samkomulag og eigum við hana til helminga á móti þeim. Sónata er mikill gæðingur með eðlisgóða reisingu, mikla útgeislun og flottan fótaburð. Það verður gaman að sjá afkvæmi hennar í framtíðinni.
Barónessa frá Brekkum
IS2001284717
F: Sær frá Bakkakóti
M: Spönn frá Árbakka
Barónessa er fyrstu verðlauna meri með 7,72 fyrir sköpulag og 8,33 fyrir hæfileika. Hana keyptum við sem klárhross fyrir Jelenu að taka með á Reiðkennaradeildina á Hólum. Hún er flug rúm á brokki og með mjög gott fet (fékk 9 fyrir fet í kynbótadóm), og svo er hún líka vel vökur! Barónessa er undan stólpa gæðingnum og heiðursverðlaunahestinum Sæ frá Bakkakoti og fyrstu verðlauna merinni Spönn sem er af Kolkuóskyni. Hún er með 120 stig í BLUP og við hlökkum til að sjá hvað hún mun gefa okkur í framtíðinni.
Kápa frá Langholti
IS1993287309
F: Klængur frá Kirkjubæ
M: Slæða frá Glæsibæ
Jón Ingi Baldursson gaf Tomma Kápu þegar hann var að vinna hjá honum ´97. Tommi fór að temja hana á Kanastöðum og þegar hann fór fyrsta reiðtúrinn út fyrir gerði þá hugsaði hann með sér að svona eiga tryppi að vera! Tölt, brokk, skeið, með fótaburði og fasi án þess að knapinn gerði nokkuð skapaðan hlut. Fimm vetra gömul enduðu þau í öðru sæti á vetrarmóti í Fáki og margir muna eftir hágengu, faxprúðu, litlu brúnku hans Tomma. Því miður fékk Kápa kvíslbandsbólgu í annan framfótinn og var aldrei hægt að sýna hana eins vel og hún hefði átt skilið. Móðir Kápu er Hrafnsdóttir og alsystir hins þekkta gæðings Jóns Inga Glæsis frá Glæsibæ.
Landey frá Stóra-Langadal
IS1998284681
F: Tvistur frá Stóra-Langadal
M: Freyja frá Stóra-Langadal
Landey kom úr stórum pakka af hrossum sem Ársæll í Forsæti keypti frá Stóra-Langadal árið 2005. Jelena byrjaði að temja hana fyrsta veturinn sem við vorum í Forsæti, þá 9 vetra gömul. Landey er stórglæsileg með mikla útgeislun og fas. Hún er stolt og er sterkur karakter. Hún er hreyfingamikil með góðan fótaburð og ofsa mýkt og skreflengd. Faðir hennar, Tvistur, er Stígssonur sem var í úrslitum í B-Flokki á FM Vesturlands ´99.
Alki frá Akrakoti
IS1999135321
F: Andvari frá Ey
M: Árdís frá Skipanesi
Alki er tölt- og fjórgangs- keppnishesturinn hans Tomma. Hann er kóngurinn í hesthúsinu og lætur alla vita! Hann er mikill og sterkur karakter. Hann er virkilega kraftmikill, viljugur, og rúmur. Þeir hafa náð ágætum árangri á sínu fyrsta keppnistímabili þar með talið 7,00 í tölti og 6,80 í fjórgangi og er markmiðið sett miklu hærra á komandi ári.
Fóstra frá Grenstanga
IS2005284250
F: Rökkvi frá Hárlaugsstöðum
M: Lyfting frá Miðhjáleigu
Þetta er í rauninni Fóstra Tomma númer 2. Þá fyrri keypti Tommi af fóstra sínum Sigmari í Miðhjáleigu. Hún var undan Orra frá þúfu og Lyftingu og fór í fyrstu verðlaun 5 vetra gömul. Því miður drapst hún í stóðhestagirðingu og var það mikill missir. Sigmar bauð Tomma að halda gæðingsmóðirinni Lyftingu aftur með sér og héldu þeir henni undir landsmótssigurvegarann og bróðir Orra, Rökkva. Þeir eru báðir undan hinum mikla gæðingi Otri frá Sauðárkróki sem að Sigmar og Tommi hafa haft miklar mætur á.Lyfting frá Miðhjáleigu er mikil gæðingamóðir undan Ófeigi frá Flugumýri. Tommi þekkir hana og afkvæmi hennar vel. Óðinn frá Miðhjáleigu var keppnishestur hjá Tomma í nokkur ár þar sem þeir urðu m.a. í 3ja sæti á Reykjavíkurmeistaramóti 1996 og voru aðrir inn á Fjórðungsmót fyrir Geysi 1996. Þá var Máni frá Miðhjáleigu undan Lyftingu mikill keppnishestur hjá frænku Tomma, Sóleyju og urðu þau meðal annars Framhaldsskólameistarar í tölti.Tommi keypti helminginn hans Sigmars í Fóstru sumarið 2008. Hún var gerð reiðfær hjá okkur í haust og er hún með frábært geðslag, vilja og allan gang! Hún verður tekinn aftur í tamningu 2009 og það verður gaman að halda áfram með hana ;)
Ívar frá Blesastöðum
IS2005187805
F: Krummi frá Blestöðum
M: Perla frá Haga
Ívar var keyptur 2005 sem folald. Móðir Jelenu, Lisi (www.Vindsdalur.ca) varð strax mjög hrifinn af Krumma og langaði að kaupa afkvæmi undan honum. Náði hún að klófesta eitt undan honum, sem er Ívar. Í sumar, rétt fyrir Landsmót eignuðumst við 20% í Ívari. Ekki spillir það fyrir að Möller, sammæðra Ívari, sló í gegn á Landsmótinu 2008 með 8,95 fyrir hæfileika og var annar í flokki 6 vetra graðhesta. Krummi, pabbi Ívars fór í 8,80 fyrir hæfileika og fengu þeir báðir 9,5 fyrir tölt! Ívar var gerður reiðfær núna í haust og er hann míkill höfðingi og litfagur (sóttrauð glófextur). Hann er stór og öflugur með miklar og rúmar hreyfingar. Verður spennandi að halda áfram með hann í vetur.
Hugsun frá Grenstanga
IS2007284251
F: Glymur frá Skeiðháholti
M: Framtíð frá Grenstanga
Hugsun er dökkjörp mjög myndarlegt tryppi sem fer um á öllum gangi. Hún var rosalega fallegt folald og erum við mjög spennt að sjá hvað úr henni verður því hún hefur frábærar ættir á bak við sig.Móðir hennar er Framtíð frá Grenstanga sem er undan Kveik og Flugu frá Gerðum, Ófeigsdóttur. Framtíð hefur verið ein af aðal reiðhrossum hjá Snorra, pabba Tomma, í mörg ár og hefur oft verið föluð af honum þar sem hann hefur geyst um Víðidalinn í Reykjavík á hágengu fasmiklu tölti. Fótaburðinn fær Framtíð frá móður sinni sem var óvenju hágeng hryssa sem þau voru nú mörg hver undan Ófeigi gamla frá Flugumýri.Oft hefur Tommi tuðað í pabba sínum að setja merina undir hest. Loksins lét Snorri eftir og sumarið 2006 fengum við að halda henni og ákváðum við að fara með hana undir Hrafnsson. Eftir spjall við mann og annan og miklar vangaveltur ákváðum við að fara með hana undir Glym. Við fengum að halda Framtíð aftur 2008 í samstarfi með móður Jelenu, Lisi, og fórum við með hana undir Krák frá Blesastöðum. Það verður spennandi að sjá.
Náma frá Grenstanga
IS2007284253
F: Töfri frá Selfossi
M: Kápa frá Langholti
Náma fæddist á afmælisdaginn hennar Jelenu og auðvitað var kærastinn svo elskulegur gefa henni Námu í afmælisgjöf. Nafnið á hryssunni kom út frá eftirnafn Jelenu er Ohm, sem þýðir við“nám“ á íslensku. Þetta verður gullnáman hennar!
Frakki frá Grenstanga
IS2005184251
F: Taktur frá Hestasýn
M: Kápa frá Langholti
Frakki var tekinn í haust og gerður reiðfær. Hann er stór með mjög mikið fax og var fljótur til. Hann er skref stór og fer á öllum gangi. Spennandi tryppi sem verður taminn meira næsta sumar.
Eilíf frá Grenstanga
IS2009284252
F: Krákur frá Blesastöðum
M: Framtíð frá Grenstanga
Eilíf er undan Kveiksdótturinni Framtíð sem við fengum lánaða aftur hjá Snorra. Við eigum hana saman með mömmu Jelenu, Lisi Ohm, sem hefur alla tíð viljað nota Krák. Eilíf er hreyfingafalleg og fer mest á mjúku brokki. Spennó ;)





