Geldingar
Ljár frá Langholti
IS2000187400
Brúnskjóttur
F:Kraflar frá Miðsitju (8.28 a.e.)
FF: Hervar frá Sauðárkróki (8.27 a.e.)
MF: Krafla frá Sauðárkróki (8.26 a.e.)
M:Góðgá frá Hjaltastöðum (7.88 a.e.)
FM: Sokki frá Kolkuósi (8.00 a.e.)
MM: Messa frá Hjaltastöðum (7.68 a.e.)
Ljár er stór og gullfallegur geldingur. Hann er afar ljúfur í umgengni, teymist mjög vel á hesti, og er allra manna hugljúfi í öllu viðmóti. Ljár er kraftmikill og býr yfir miklu rými á brokki og tölti og stökkið er hátt og mikið. Þar sem Ljár er stórmyndarlegur og hefur mikið fas og útgeislun myndi hann henta frábærlega sem gæðinga- keppnishestur í alla flokka, frá Barnaflokki upp í B-Flokk og allt þar á milli. Snilldar reið-, keppnis-, og ferðahestur!
Verð: 800.000,-ISK

Prins frá Forsæti- Seldur
IS2001184680
Grár
F: Atgeir frá Tókastöðum (8.18 a.e.)
FF: Gustur frá Hóli (8.57 a.e.)
MF: Krafla frá Tókastöðum (7.53 a.e.)
M: Birta frá Forsæti
FM: Davíð frá Ögmundarstöðum (7.68 a.e.)
MM: Lísa frá Selfossi
Prins er afar þægilegur og sætur geldingur. Hann er prúður og með fínan fótaburð. Prins er mjög traustur og þægur reiðhestur sem hentar sérstaklega fyrir börn eða byrjendur.
Verð: 400.000,- ISK

Sirkus frá Þingeyrum - Seldur
IS2001156328
Grár
F:Markús frá Langholtspartí
M:Svala frá Þingeyrum
Sirkus er einstaklega skemmtilegur karakter með frábærar grunngangtegundir, fet, brokk og stökk og töltið er líka gott. Systur Sirkus eru Saga Gustsdóttir frá Þingeyrum sem er í eigu Shannon Fitzgerald í Bandaríkjunum sem á einnig móður hans Svölu og Sara frá Þingeyrum undan Galsa frá Sauðárkróki sem er í eigu Petru Liggenstorfer í Sviss. Allt farsæl og eftirtektarverð hross. Fyrir utan það að vera skemmtilegur reiðhestur og keppnishestur þá kann Sirkus ýmislegt fyrir sér svo sem að leggjast og stökkva yfir hindranir enda afar gaman að kenna honum hitt og þetta. Sirkus er mjög traustur í lund, taugasterkur og rólegur og hendar fyrir allar. Sirkus er mikið þjálfaður hestur og vel taminn, kann ýmislegt fyrir sér í fimiþjálfun og er mjög sterkur og þolinn hestur. Hann fór í gegnum Reiðkennaradeildinni á Hólum með Jelenu vetur ´09.





